Íslandsmeistaramót í 25 m laug 2021
Íslandsmeistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði dagana 12-14. nóvember 2021 í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra. Sundfélag Hafnarfjarðar sér um framkvæmd mótsins.
Skráningafrestur rennur út þriðjudaginn 26. október 2021.
Mótið er keyrt á Splash mótaforritinu og ber félögum að skila skráningum á því formi.
Mótið er keyrt á Splash mótaforritinu og ber félögum að skila skráningum á því formi.
Þeir sem ekki hafa yfir að ráða mótaforriti skulu skila skráningum á Swimrankings Online Manager sem er skráningagátt Swimrankings.
Skráningum skal skilað með rafrænum hætti á skraning@iceswim.is ásamt pdf skjali með skráningum til að auðvelda yfirferð.
Dómarar skrá sig með pósti á skraningssimot@gmail.com.
Allir starfsmenn, þar á meðal dómarar geta skráð sig beint í starfsmannaskjalið hér.
Gert er ráð fyrir að keppni í morgunhlutum hefjist kl. 9:30 alla daga og í úrslitum kl. 16:30.
Nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni þegar nær dregur.
Tímaáætlun gæti breyst.
Bein úrslit / Live timing ÍM-25 2021
Ráslistar eru ekki staðfestir fyrr en 2 tímum fyrir hvern hluta
Bein vefútsending / Live Stream
Drög að tímaáætlun
Morgunhlutar:
Upphitun kl. 8:00
Keppni hefst: kl. 09:30
Kvöldhlutar:
Upphitun kl. 15:00
Keppni hefst kl. 16:30
Þjálfarar athugið: Tæknifundur hefst kl. 8:30 að morgni föstudags 12. nóv í hátíðarsal Ásvallalaugar, 2. hæð.
Starfmenn skulu mæta ekki síðar en 45 mínútum áður en keppni hefst.
Morgunhlutar: Starfsmenn mæta 8:45
Kvöldhlutar: Starfsmenn mæta 15:45
Starfsmenn og dómarar skrá sig til starfa á mótið beint í starfsmannaskjalið:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/15Gjy9k-JC4yxQ4Mt2PWLDGFkIQn8rGX6U1ArGiY_WC0/edit#gid=0
Dómarar geta einnig sent póst á skraningssimot@gmail.com
Hér er hægt að sjá hvað hvert félag á að skila af starfsmönnum :
Almenn ákvæði Sundsambands Íslands í Lögum og Reglugerðum SSÍ: