ÍRB Bikarmeistari kvenna og SH Bikarmeistari karla 2014
Í kvennaflokki sigraði ÍRB keppnina með 15852 stigum og SH varð í öðru sæti með 15466 stig. Í þriðja sæti varð svo UMSK með 12390 stig og í því fjórða varð Sundfélag Akraness með 10814 stig.
Í karlaflokki snerist dæmið við og SH varð Bikarmeistari með 15019 stig, ÍRB náði öðru sætinu með 13142 stig, UMSK varð einnig í þriðja sæti í karlaflokki með 11830 stig og Sundfélag Akraness varð í því fjórða með 9431 stig.
Stigagjöfin var eftir FINA stigum. Úrslitin má nálgast hér.
Að ári eiga þá keppnisrétt í fyrstu deild kvenna; ÍRB, SH, ÍBR, UMSK, Óðinn og Sundfélag Akraness. Í fyrstu deild karla eiga keppnisrétt á næsta ári; SH, ÍBR, ÍRB, UMSK, Sundfélag Akraness og Óðinn.
Myndirnar sýna Bikarmeistarana og þá sem urðu í öðru sæti eftir verðlaunaafhendingu