Eygló Ósk fyrst íslendinga til að tryggja sér farseðil á ÓL 2016
Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona úr Sundfélaginu Ægi synti 200 metra baksund, fyrr í dag undir lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Brasilíu 2016. Um leið setti hún Norðurlandamet og Íslandsmet í greininni. Tími Eyglóar Óskar er 2:09,86, lágmarkið inn á ÓL er 2:10,60 og gamla Íslandsmetið átti Eygló Ósk sjálf en það var 2:10,34 sett fyrir ári síðan í Danmörku. Gamla Norðurlandametið var 2:10,27.
Með þessum árangri er Egló Ósk þriðja hraðasta evrópukonan og 5 hraðasta konan í heiminum í 200 metra baksundi.
Eygló Ósk er að keppa á Opna danska meistaramótinu og er í feikna stuði. Við hlökkum til að sjá hana keppa á ÍM50 sem verður í Laugardalslaug 10.-12. apríl 2015.
Hér er hlekkur með frétt á mbl.is
Hér er hlekkur með frétt á visi.is
Hér er hlekkur með frétt á ruv.is