Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug 2023
Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði dagana 10.-12. nóvember 2023 í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra. Sundfélag Hafnarfjarðar sér um framkvæmd mótsins.
Mótið er keyrt á Splash mótaforritinu og ber félögum að skila skráningum á því formi.
Nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni þegar nær dregur.
Tímaáætlun gæti breyst.
Bein úrslit / Live timing ÍM25 2023
Ráslistar eru ekki staðfestir fyrr en 2 tímum fyrir hvern hluta
Bein vefútsending / Live Stream
Undanrásir | Föstudagur 09:30
ÚRSLIT | Föstudagur 17:00
Undanrásir | Laugardagur 09:30
ÚRSLIT | Laugardagur 17:00
Undanrásir | Sunnudagur 09:30
ÚRSLIT | Sunnudagur 17:00
Drög að tímaáætlun
Morgunhlutar:
Upphitun kl. 8:00
Keppni hefst: kl. 09:30
Kvöldhlutar ATH Breytt tímasetning
Upphitun kl. 15:30
Keppni hefst kl. 17:00
Þjálfarar athugið: Tæknifundur fer fram á Teams miðvikudaginn 8. nóvember kl. 12:00
Starfsfólk skal mæta ekki síðar en 60 mínútum áður en keppni hefst.
Hér að neðan koma inn úrslit að móti loknu.
Um mótið gildir reglugerð um Opna Íslands- og Unglingameistaramótið í 25 m laug (ÍM25). Að öðru leiti gilda lög Sundsambands Íslands og almenn ákvæði.
Sérstök athygli er vakin á 6. grein Almennra ákvæða Sundsambands Íslands um skráningarfrest sem og á verðskrá SSÍ sem er að finna aftast í lögum og reglugerðum SSÍ og má nálgast hér.
Hér að neðan má sjá reglugerðina um ÍM25.
Reglugerð um Opna Íslands- og Unglingameistaramótið í 25 m laug (ÍM25)
1. grein
Íslands- og Unglingameistaramót í 25 m laug skal haldið ár hvert í nóvember. Mótið skal vera opið og auglýst í mótaskrá LEN.
2. grein
Stjórn SSÍ ákveður fjölda mótsdaga og tilkynnir skipulag mótsins og mótsstað með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara. Þá daga sem mótið fer fram er óheimilt að stofna til annarrar sundkeppni á vegum sambandsaðila SSÍ.
Heimilt er að halda Íslandsmót fatlaðra í sundi samhliða og í tengslum við ÍM25.
3. grein
Lágmörk á ÍM25 eru ákveðin af stjórn SSÍ. Lágmörk eru gefin út árlega. Stjórn SSÍ hefur tillögur þjálfaranefndar SSÍ og yfirmanns landsliðsmála til hliðsjónar við ákvörðun sína um lágmörk. Skráningartímar mega ekki vera eldri en 12 mánaða eða frá upphafsdegi ÍM25 árið áður, sbr. almenn ákvæði SSÍ.
Lágmarkatímar skulu miðast við 25m laug en gildum tímum má ná í 50m laug en skulu skráningartímar þá umreiknaðir skv. staðfestri reiknireglu sem stjórn SSÍ gefur út.
Sé keppandi með að minnsta kosti 1 lágmark, má viðkomandi bæta við sig allt að tveimur greinum, óháð lágmörkum. Viðkomandi verður að eiga gildan tíma í greinum sem bætt er við. Ekki er hægt að synda 800m og 1500m skriðsund án lágmarka. Aukagreinar eru settar inn samhliða öðrum skráningum og skulu tilkynntar sérstaklega í tölvupósti.
4. grein
Á mótinu skal keppt í eftirtöldum greinum í karla og kvennaflokkum:
Skriðsund 1500 m skriðsund 800 m skriðsund 400 m skriðsund 200 m skriðsund 100 m skriðsund 50 m skriðsund Flugsund 200 m flugsund 100 m flugsund 50 m flugsund Fjórsund 400 m fjórsund 200 m fjórsund 100 m fjórsund | Bringusund 200 m bringusund 100 m bringusund 50 m bringusund Baksund 200 m baksund 100 m baksund 50 m baksund Boðsund (bein úrslit) 4x50 m fjórsund 4x100 m fjórsund 4x200 m skriðsund 4x100 m skriðsund 4x50 m fjórsund, kynblandað (2 karlar + 2 konur) 4x50 m skriðsund, kynblandað (2 karlar + 2 konur) |
5. grein
Undanrásir og úrslit á Íslandsmeistaramótinu fara fram í 50m, 100m, 200m og 400m greinum og synda 6 eða 8 keppendur til úrslita sem bestum tíma ná í undanrásum en þó aldrei fleiri en tveir erlendir ríkisborgarar í hverri grein. Í 800m og 1500m greinum fara fram bein úrslit þannig að hraðasti riðill syndir í úrslitahluta en aðrir riðlar í undanrásahluta mótsins.
Keppt er í boðsundum í beinum úrslitum í lok hvers keppnishluta.
Ekki er heimilt að fella niður undanrásir þó fjöldi keppenda fylli einungis einn riðil.
Unglingameistaramótið fer fram í undanrásum á sama hátt. 800 m og 1500 m greinar eru syntar í beinum úrslitum. Boðsund eru ekki hluti af Unglingameistaramótinu.
6. grein
Verðlaun eru veitt með tvennum hætti. Annars vegar eru veitt verðlaun í opnum flokkum karla og kvenna fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri grein á mótinu og hins vegar eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í unglingaflokki. Verðlaunaafhending fer fram í úrslitahluta.
Einungis íslenskir ríkisborgarar geta hlotið titilinn Íslandsmeistari og veita skal sérstök verðlaun í keppni um fyrstu þrjú sætin í keppni um Íslandsmeistaratitil keppi erlendir ríkisborgarar á mótinu.
Erlendir ríkisborgarar geta hlotið titilinn Unglingameistari að því tilskyldu að viðkomandi keppi fyrir íslenskt félag.
7. grein
Bikar skal veittur þeim íslenska kvenmanni er besta afrek vinnur á mótinu samkvæmt gildandi stigatöflu FINA.
Bikar skal veittur þeim íslenska karlmanni er besta afrek vinnur á mótinu samkvæmt gildandi stigatöflu FINA.
8. grein
Starfsmannafund eða -fundi skal halda samkvæmt nánari auglýsingu fyrir upphaf móts/mótshluta.
September 2022