Sundþing SSÍ
Úr lögum SSÍ
5. grein (úr Lögum SSÍ, samþykkt á Sundþingi 2015)
Sundþing fer með æðsta vald í málum SSÍ. Sundþing sitja fulltrúar héraðssambanda og íþróttabandalaga ásamt fulltrúum félaga sem eiga aðild að SSÍ.
Hvert héraðssamband/íþróttabandalag má senda einn fulltrúa á sundþing. Hvert félag sem á skráða iðkenndur við næstu áramót fyrir sundþing, á rétt á tveimur fulltrúum fyrir allt að 30 virka iðkenndur í sundíþróttum og einum fulltrúa fyrir hverja 30 iðkenndur í sundíþróttum eða brot úr þeirri tölu eftir það. Að auki mega félög sem eiga skráða keppendur í sundíþróttum senda 1 fulltrúa til viðbótar á sundþing fyrir hverja 50 keppendur eða brot úr þeirri tölu eftir það.
Sundþing skal haldið annað hvert ár, á oddatöluári, jafnan í febrúar eða mars. Stjórn SSÍ boðar og staðfestir staðsetningu og fyrirkomulag sundþings með minnst 6 vikna fyrirvara. Málefni og tillögur, sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu kynnt stjórn SSÍ minnst mánuði fyrir þing. Þá kynnir stjórn SSÍ sambandsaðilum dagskrá og málefni þingsins í síðasta lagi hálfum mánuði fyrir þingið.
Sundþing er lögmætt, ef löglega hefur verið til þess boðað. Rafræn boðun er lögmæt ásamt tilkynningu á heimasíðu SSÍ. Ekki er heimilt að stofna til keppni í sundíþróttum þá daga sem sundþing fer fram og þá er óheimilt er að halda sundþing á sömu dögum og íþróttaþing eða formannafundir ÍSÍ fara fram.
Þau ár sem sundþing er ekki haldið boðar stjórn til formannafundar í febrúar.
Sundþing 2025
66. þing Sundsambands Íslands verður haldið í húsakynnum SÁÁ í Efstaleiti 29. mars 2025 frá kl: 11 - 18. Þingstörf verða með hefðbundnum hætti. Þingforsetar verða þau Guðmundur Óskarsson formaður golfklúbbsins Keilis og Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍA.
Þá verður listi með heiðursviðurkenningum (þingskjal 7) birt á þinginu sjálfu.
Á næstu dögum koma uppfærðar útgáfur af afreksstefnu, stefnu SSÍ horft til framtíðar og handbók keppenda inn á svæði þingsins.
Gögn 66. þings Sundsambands Íslandser hægt að finna hér