Tveir íslenskir sunddómarar á Smáþjóðaleikunum í Lúx
Íslendingar hafa verið mjög duglegir að senda sunddómara sína á alþjóðleg mót, þar sem þeir hafa fengið góða reynslu, endurmenntun og kynnst vinnubrögðum annarra þjóða. Á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg eru þau tvö að vinna sem dómarar; Svanhvít Jóhannsdóttir formaður Móta-, tækni- og dómaranefndar SSÍ og Ólafur Baldursson ritari SSÍ. Þau eru bæði þrautreyndir yfirdómarar og eru á dómaralista FINA, Alþjóðasundsambandsins. Þau fá tækifæri til að ganga í ýmis verk tengd dómgæslu hér í Lúx, eru yfirdómarar í einhverjum hlutum, almennir dómarar og eru í keppendaherbergi til að tryggja að sundfatnaðurinn sé löglegur.
Svanhvít fæddist og ólst upp á Ísafirði og kom inn í sundhreyfinguna þegar hún kynntist manninum sínum, Ólafi Þór Gunnlaugssyni, en hann lest fyrir nokkrum árum. Hún hefur verið formaður dómaranefndar SSÍ í nokkur ár og dæmt bæði á Evrópumeistaramótum og Alþjóðlegum mótum. Hún hefur sótt námskeið á vegum FINA í dómgæslu eins og Ólafur Baldursson sem einnig hefur dæmt á Evrópumeistaramótum og á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein fyrir tveimur árum. Ólafur er Siglfirðingur og hefur á síðari árum stundað garpasund og séð um málefni víðavatnssund í stjórn SSÍ.
Þau hafa bæði leiðbeint starfandi dómurum og reynt að miðla reynslu sinni og þekkingu til annarra starfandi dómara á Íslandi.
Á myndinni sitja þau saman ásamt yfirdómara Smáþjóðaleikana í Lúxemborg 2013.