Hrafnhildur varð 30. í 100 metra bringusundi
29.07.2013Hrafnhildur varð 30. þegar hún lauk keppni í 100 metra bringusundi nú í morgun. Tíminn hennar var 1:09,75. Íslandsmetið hennar er 1:09,48 frá því í apríl síðasliðnum.
Hrafnhildur var skráð með 32. besta tímann í upphafi keppni.
Meilutyte stúlkan frá Litháen, sem kom öllum á óvart á ÓL í London, setti mótsmet í síðasta riðlinum þegar hún synti á 1:04,52, en hún var fyrirfram skráð með besta tímann í greininni.
Síðasti tími inn í undanúrslit var 1:08,36.
Til baka