Tímarit FINA komið á vefinn
22.08.2013
Til bakaAlþjóða sundsambandið gefur út veglegt tímarit nokkrum sinnum á ári. Þessi tímarit eru bólgin af efni og myndum tengdum sundíþróttum. Helsti galli þeirra hingað til hefur verið hversu þykk þau eru og á þungum pappír.
Undanfarin tvö ár hefur FINA einnig gefið tímaritið út á vefnum og nýjasta útgáfan er helguð Heimsmeistaramótinu í sundíþróttum sem fram fór í sumar í Barcelona.
Ef smellt er hérna er hægt að lesa tímaritið í tölvunni. Góða skemmtun.
Gætið að því að skrifa nafnið ykkar og landið með enskri stafsetningu - kerfið ræður ekki við íslenska stafi.