Paolo Frischnecht nýr framkvæmdastjóri LEN
28.09.2013Portúgalinn Paolo Frischnecht hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri LEN. Þetta var tilkynnt á ársþingi LEN nú rétt í þessu. Hann tekur við af Laszlo Szakadati i sem lét af störfum fyrr á þessu ári.
Paolo var formaður portúgalska sundíþróttasambandsins í nokkur ár og hefur setið í stjórn LEN og FINA undanfarin kjörtímabil. Hann er fyrrum sundmaður og þekkir vel til í sundheiminum. SSÍ væntir mikils af samstarfi við Paolo, en við höfum fundið fyrir því hversu mikilvægt er fyrir SSÍ að vera í góðu sambandi við LEN.

Um leið lætur Paolo af störfum í stjórn LEN, en ekki er ennþá ljóst hver tekur sæti hans þar.