Frá stjórn SSÍ
Á fundinum var farið yfir starfið undanfarinn mánuð, fjármál og fjáröflun rædd og staðfestar þrjár reglugerðir; Reglugerð um Grunnskólamót SSÍ, Almennar sundreglur SSÍ um skólakeppni og Reglugerð um Íslandsmót félagsliða.
Það var farið yfir uppgjör á styrkjum Afrekssjóðs, nýjar umsóknir í sjóðinn og möguleika okkar að auka fræðslu og þjónustu við sundfólk.
Landsliðsþjálfari var á fundinum og ræddi framhald á atburðadagatali SSÍ fram yfir næstu áramót og einnig hugmyndafræði í uppbyggingu landsliða á Íslandi. Við áætlum að starfandi þjálfarar muni hittast í tengslum við stefnumörkun SSÍ í febrúar og ræða þessar hugmyndir á breiðum grunni. Við munum láta atburðadagatalið lengjast jafnóðum og við sjáum hvar og hvenær alþjóðamótin eru sett.
Á fundinum var farið yfir erindisbréf allra nefnda SSÍ og þau endurstaðfest. Þá var staðfestur listi þeirra sem starfa í nefndum - bæði þeir sem hafa verið og nýjir sem bætast inn. Í tengslum við það staðfestum við þýðingu á sundreglum FINA sem hægt er að finna hér.
Smáþjóðaleikar voru ræddir og útnefning lykilfólks staðfest.
Fundargerðir stjórnar er hægt að finna hér.