Dagur 2 á ÍM50 - Metaregn!
12.04.2014
Í morgun hófust undanrásir kl. 10 og og setti Brynjólfur Óli Karlsson, Breiðabliki, drengjamet í 50m baksundi með tímann 29,92. Brynjólfur Óli synti greinina aftur í úrslitum en náði ekki að bæta sig enn frekar. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson háði hörkubaráttu við Kristinn Þórarinsson í greininni en sá fyrrnefndi hafði betur með 7/100 úr sekúndu.
Í síðustu grein morgunsins, 4x100m fjórsundsboðsundi í blönduðum flokki (2 konur, 2 karlar) voru tvö Íslandsmet sett.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sundsambandið skráir met í þessum flokki í 50m laug svo sigurvegari fyrri riðilsins setti fyrra metið í greininni en það var B sveit SH sem synti á tímanum 4:13,78 og voru það Kolbeinn Hrafnkelsson, Viktor Máni Vilbergsson, Snjólaug Tinna Hansdóttir og Karen Sif Vilhjálmsdóttir sem skipuðu sveitina.
Í seinni riðlinum sigraði A sveit SH og bætti glænýja metið þegar þau syntu á 4:04,47 og voru það þau Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Ingibjörg K. Jónsdóttir og Aron Örn Stefánsson sem skipuðu þá sveit.
Í úrslitum sigraði Eygló Ósk Gústafsdóttir 100m flugsund eftir einvígi við Bryndísi Rúnu Hansen sem leiddi sundið þangað til um 10 metrar voru eftir. Þá gaf Eygló í og sigraði á tímanum 1:02,10.
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð langfyrst í 200m bringusund þó hún hafi verið nokkuð frá Íslandsmeti sínu. Hún synti á 2:29,20.
Í 800m skriðsundi kvenna féll telpnamet en Harpa Ingþórsdóttir úr SH setti það þegar hún synti á 8:20,94. Gamla metið var tveggja ára gamalt í eigu Birtu Maríu Falsdóttur, ÍRB. Það var 8:28,28.
Í 4x100m fjórsundsboðsundi kvenna setti A sveit SH nýtt Íslandsmet þegar hún synti á tímanum 4:16,18. Sveitina skipuðu þær Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir og Karen Sif Vilhjálmsdóttir. Gamla metið átti sveit Ægis, 4:18,19 frá því 2012.
Í sömu grein setti stúlknasveit ÍRB stúlknamet en þær höfnuðu í öðru sæti á tímanum 4:35,03 en gamla metið var 4:37,15 sem sveit SH setti árið 2008. Sveit ÍRB skipuðu þær Íris Ósk Hilmarsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Sylwia Sienkiewicz og Sunneva Dögg Friðriksdóttir.
Þá sló karlasveit SH Íslandsmetið í 4x100m skriðsundi þegar þeir syntu á tímanum 3:31,48. Sveitina skipuðu þeir Aron Örn Stefánsson, Kolbeinn Hrafnkelsson, Predrag Milos og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson. Gamla metið var 3:33,08 en sveit SH átti það einnig frá því fyrir tveimur árum. Þeir Aron Örn og Kolbeinn syntu einnig í þeirri sveit.
Á morgun hefjast undanrásir sem fyrr kl. 10 en úrslitin eru klukkutíma fyrr, 16.30.
Meðal greina á morgun 100m baksund þar sem Davíð Hildiberg og Kristinn Þórarinsson heyja enn eina baráttuna og Eygló Ósk mun reyna að bæta Íslandsmetið sitt í greininni.
Úrslit mótsins - http://sh.lausn.is/mot/2014/IM50/index.htm
Heildargreinalista og aðrar upplýsingar má finna á ÍM50 síðunni okkar: