Ingibjörg bætti sig í 100m baksundi
20.08.2014
Til bakaIngibjörg Kristín Jónsdóttir synti 100m baksund í undanrásum á EM50 í Berlín í morgun og stóð sig með ágætum. Hún synti á 1:04,46 og bætti þar með sinn besta tíma um 2/100 úr sekúndu.
Tíminn skilaði henni í 33. sæti en næst keppir hún í 50m baksundi eftir tvo daga.
Í fyrramálið syndir Hrafnhildur Lúthersdóttir svo 200m bringusund í undanrásum.