Fleiri fréttir af Antoni og Hrafnhildi.
19.01.2015
Hrafnhildur og Anton syntu til úrslita á Arena Pro móti bandaríska sundsambandsins Í Austin Texas nú um helgina.
Hrafnhildur hafnaði í 3. sæti í 200 metra fjórsundi tíminn hennar var 2.15.12 sem er hennar besti tími í fjórsundi. Íslandsmetið á Eygló Ósk en það er 2.14.87.
Hrafnhildur vann jafnframt B úrslitin í 100 bringu.
Anton Sveinn endaði í 6. sæti í 100 metra bringusundi 1.02.59. Íslandsmetið á Jakob Jóhann 1.01.32.
Þetta er fínn árangur hjá þeim en þetta var mjög sterkt mót.
Hér er tengill á úrslit http://www.txlameetresults.com/