Jóhanna Gerða í góðum gír
Hún var kosin sundmaður mótsins nú á loka árinu sínu en hún fékk einnig þann titil á sínu fyrsta ári þá í deild sem kallaðist Sun Belt Conference. Hún keppir fyrir FIU (Florida International Universiti).
7 skólar kepptu og var aðal keppnin á milli RICE – Western Kentucky og FIU og stóðFIU uppi sem sigurvegari, en þetta er í fyrsta skipti sem skólinn vinnur deildarmeistaratitilinn.
Jóhanna Gerða sigraði allar greinarnar sínar en sundmaður má synda þrjár einstaklingsgreinar og vera þrisvar sinnum í boðsundsliði. Hún setti tvö mótsmet og fjögur skólamet þar af tvö í einstaklingsgreinum.
- 200 yarda fjórsund ( mótsmet og skólamet ) og farseðil á NCAA,
- 400 yarda fjórsund ( mótsmet ),
- 200 yarda bringusund ( skólamet ).
- Einnig vann liðið 4 x 100 yarda skriðsund (skólamet) en þar átti JGG síðasta sprettinn og náði að stela sigrinum, eftir að stinga sér til sunds með tvær boðssundssveitir á undan FIU sveitinni.
- Auk þess setti FIU skólamet í 4x100 yarda fjórsundi.
Á ferlinum í Bandaríkjunum hefur Jóhanna Gerða unnið 11 einstaklingsgreinar á deildarmótum og 3 í boðsundum. Hún mun svo taka þátt í NCAA, sem er stærsta háskólamót í USA, en þetta er fjórða árið í röð sem hún nær lágmörkum á mótið.
Jóhanna Gerða var að því komin að hætta sundiðkun fyrir nokkrum árum en þennan texta setti hún inn á facebooksíðuna sína fyrir nokkru:
"6 years ago, I decided to put to rest my cap and goggles. After 2 years of being out of the water and being unhappy in my own skin, I took the biggest decision of my life, to move across the world and get back into the sport I had always loved. I have without a doubt had one of the most successful college career a swimmer can ask for, every year I have improved in the pool and every year grown more as a person. As a team we just wrote history. First ever swimming&diving championship and first ever #CUSA championship title for #FIU I have never been so proud to be a #GoldenPanther.
I couldn't have achieved any of this without the help of my swim fanatic family, friends, coaches, former and current teammates.
Next stop NCAA."
Hér fyrir neðan eru nokkrir skemmtilegir hlekkir á efni sem tengist Jóhönnu Gerðu.
Eitt video til viðbótar
Yngri systir Jóhönnu Gerðu er eins og flestir vita, Eygló Ósk Gústafsdóttir.