Þakkir til ykkar allra
Fyrir hönd Sundsambands Íslands þakka ég öllum þeim sem á einhvern hátt komu að sundkeppninni á Smáþjóðaleikunum, fyrir þeirra framlag.
Þið öll sem buðu fram vinnu ykkar sem sjálfboðaliðar, til dómgæslu, tæknivinnu, verðlaunaveitinga, umferðarstýringar, veitingasölu og fleiri starfa, bæði í aðdranda og á leikunum sjálfum. Takk kærlega fyrir ykkar ómetanlega starf. Án ykkar hefði sundkeppnin verið svipur hjá sjón.
Þið öll sem tókuð þátt í að undirbúa sundlið Íslands á leikunum beint og óbeint. Takk kærlega fyrir ykkar vinnu, sem gerði okkur kleift að senda til keppni sterkt og samhent lið á leikunum.
Þjálfarar, sjúkraþjálfari, flokkstjóri sundliðsins og sundliðið allt. Takk kærlega fyrir skemmtunina og árangurinn. Sundhreyfingin fylgdist stolt með ykkar undirbúningi og árangri.
Þið sem komuð til að horfa á sundkeppnina og hvetja íslenska keppendur. Takk kærlega fyrir stuðninginn á heimavelli, hann skilaði sér og við búum að honum áfram.
Starfsfólk Laugardalslaugar. Takk kærlega fyrir frábæra samvinnu og útsjónarsemi, ykkar starf er góður bakhjarl sundhreyfingarinnar.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Takk kærlega fyrir samstarfið, áhugann og metnaðinn sem smitaði út til okkar hinna.
Mannauðurinn sem hreyfingin býr að og blómstraði á leikunum er ómetanlegur. Það er því von mín og vissa að starf ykkar allra á Smáþjóðaleikunum 2015, skili okkur fram á við í uppbyggingu sundíþróttarinnar á Íslandi.
Fyrir hönd Sundsambands Íslands
Hörður J. Oddfríðarson
Formaður SSÍ