Öðrum degi ÍM25 lokið - 4 Íslandsmet í dag
Öðrum hluta Íslandsmeistaramótsins í 25m laug var rétt í þessu að ljúka. 4 Íslandsmet voru sett í dag og fengum við að sjá mörg hörkuspennandi úrslitasund.
Í morgunhlutanum var synt í 4x50m blönduðu boðsundi en þar synda 2 konur og 2 karlar saman í sveit. A sveit SH bætti þar eigið Íslandsmet í greininni þegar hún synti á tímanum 1:47,55 sem er bæting á fyrra meti um 14/100 úr sekúndu en það var var í eigu sveitar Ægis. Sveitina skipuðu Kolbeinn Hrafnkelsson, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Aron Örn Stefánsson og Karen Sif Vilhjálmsdóttir.
Hrafnhildur setti svo Íslandsmet í 100m fjórsundi í úrslitunum seinni partinn þegar hún synti til sigurs á tímanum 1:00,63 sem er bæting á meti Eyglóar Óskar Gústafsdóttur um 86/100 úr sekúndu.
A sveit SH bætti svo Íslandsmetið í 4x100m fjórsundi kvenna þegar þær syntu á tímanum 4:17,43 og bættu þar þriggja ára gamalt með sem SH átti einnig 4:19,86. Sveitina skipuðu þær Katarína Róbertsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, María Fanney Kristjánsdóttir og Karen Sif Vilhjálmsdóttir.
Strákarnir hjá SH létu sitt ekki eftir liggja og bættu Íslandsmetið í 4x100m skriðsundi en þeir sigruðu greinina á tímanum 3:24,25 en gamla var 3:25,63. Aron Örn Stefánsson, Kolbeinn Hrafnkelsson, Viktor Máni Vilbergsson og Predrag Milos skipuðu sveitina.
Við óskum þessum einstaklingum innilega til hamingju með árangurinn og minnum á að undanrásir hefjast aftur í fyrramálið kl. 10 og úrslit kl. 16.
Úrslit og ráslistar birtast hér undir Upplýsingar