Fyrsti fundur nýrrar stjórnar SSÍ
Ný stjórn SSÍ, sem kjörin var á Sundþingi fyrir stuttu, kom saman fimmtudaginn 6. apríl, daginn fyrir ÍM50. Á fundinum var farið yfir niðurstöður Sundþings og mál sem þingið beindi til stjórnar voru rædd og þeim komið í farveg. Þá skipaði stjórnin í nefndir sambandsins og eru þær nú flestar fullskipaðar. Lista yfir nefndirnar er að finna í fundargerð sambandsins hér.
Hægt er að finna fundargerðir SSÍ hér, Stefnu og Afreksstefnu SSÍ hér. Þá er Handbók SSÍ að finna hér..
Stjórn SSÍ skipti með sér verkum sem hér segir:
Formaður: Hörður J. Oddfríðarson
Varaformaður: Jón Hjaltason
Gjaldkeri: Björn Sigurðsson
Ritari: Jóna Margrét Ólafsdóttir
Meðstjórnendur: Bjarney Guðbjörnsdóttir
Elsa María Guðmundsdóttír
Hilmar Örn Jónasson
Hrafnhildur Lúthersdóttir
Margrét Gauja Magnúsdóttir
Varastjórn: Eva Hannesdóttir
Helga Sigurðardóttir