Landsliðsnefnd hefur lokið vali á Smáþjóðaleikaliðinu
Smáþjóðaleikarnir 2017 verða haldnir í San Marino dagana 29. maí til 3. júní. Íslendingar hafa alla tíð verið mjög sigursælir í sundhluta leikanna og meira en helmingur allra verðlauna Íslands á Smáþjóðaleikum frá upphafi koma úr sundi. Liðið sem keppir í San Marino nú í vor er skipað 16 einstaklingum, 8 konum og 8 körlum. Það eru þau:
Aron Örn Stefánsson SH
Ágúst Júlíusson SA
Bryndís Bolladóttir Breiðablik
Bryndís Rún Hansen Óðni
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson ÍRB
Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi
Hafþór Jón Sigurðsson SH
Hrafnhildur Lúthersdóttir SH
Inga Elín Cryer Ægi
Íris Ósk Hilmarsdóttir ÍRB
Karen Mist Arngeirsdóttir ÍRB
Kristinn Þórarinsson Fjölni
Kristófer Sigurðsson ÍRB
Sunneva Dögg Robertson ÍRB
Viktór Máni Vilbergsson SH
Þröstur Bjarnason ÍRB
Þjálfarar með liðinu verða þeir Jacky Jean Pellerin landsliðsþjálfari og Steindór Gunnarsson. Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari fer með til San Marino og Málfríður Sigurhansdóttir verður flokkstjóri sundliðsins.
Smáþjóðaleikarnir hafa verið haldnir annað hvert ár frá árinu 1985 og þar er keppt undir merkjum Ólympíunefnda níu þjóða í Evrópu, það eru Andorra, Ísland, Kýpur, Lichtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, San Marínoó og Svartfjallaland. Ísland hefur í tvígang verið gestgjafi leikanna árið 1997 og svo árið 2015.