Næstkomandi laugardag 20. janúar verður fyrsti dagur í ÆFUM/18.
16.01.2018
Til bakaNæstkomandi laugardag 20. janúar verður fyrsti dagur í ÆFUM/18.
Landsliðsnefnd og fræðslunefnd SSÍ hafa ákveðið að hafa fræðslu þennan dag fyrir sundfólk 13 ára og eldri og fyrir þá sundmenn sem tóku þátt og þeir sem náðu lágmörkum í verkefnum SSÍ í desember s.l. EM25 og NM hóp og Tokyo 2020.
Fyrirlesturinn verður í D-sal ÍSÍ kl 12:30.
Hulda Bjarkar sundþjálfari og íþróttafræðingur mun fara yfir markmiðssetningu :
- Hvernig er hægt að setja sér markmið og ná sem mestum árangri.
- Hvernig á að taka sigrum og ósigrum
- Hvaða þættir eru það í lífi sundmanna sem geta haft áhrif á að þeir nái markmiðum sínum.
Ég vil biðja þjálfara að senda mér áætlaðan fjölda sundmanna frá hverju félagi sem hafa hug á að mæta, til að hægt sé að áætla sæti í salnum.