Boðsundskeppni grunnskóla á morgun þriðjudag 13.mars
12.03.2018
Til bakaBoðsundskeppni grunnskóla fer fram á morgun í Ásvallalaug í Hafnarfirði og hefst mótið kl 10:00.
Það eru 36 skólar sem taka þátt í ár eða 544 keppendur, sem eru fleiri en í fyrra sem eru frábærar fréttir !
Til að geta haldið þetta skemmtilega mót þá þurfum við aðstoðarmenn, dómara og ræsi. Við erum þegar komin með frábæra kynna og ljósmyndara.
Við þurfum fólk á hnappa við brautirnar einnig er þörf á almennri aðstoð við brautirnar.