Æfingabúðir á Tenerife 2018
05.06.2018
Til bakaSundfólk sem hefur náð A og B lágmarki á YOG 2018 ásamt sundfólki sem hefur náð inn á NÆM 2018 hefur dvalið á Tenerife s.l 7 daga í æfingabúðum. Með þeim í för voru þjálfararnir Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Bjarney Guðbjörnsdóttir sem einnig var fararstjóri og Andri Helgason sjúkraþjálfari.
Sundfólkið er á heimleið eftir mjög vel heppnaða ferð og er væntanlegt hingað til lands í nótt.