Smáþjóðaleikaliðið 2019 hefur verið valið
10.04.2019
Til bakaStjórn SSÍ hefur samþykkt tillögu Landsliðsnefndar um val á Smáþjóðaleikaliðinu 2019. Liðið mun taka þátt í leikunum dagana 28.- 30 maí nk.
Bryndís Rún Hansen og Snæfríður Sól Jórunnardóttir gátu ekki gefið kost á sér að þessu sinni vegna anna í námi.
Liðið saman stendur af 8 sundmönnum og 11 sundkonum.
Þjálfara verða Mladen Tepavcevic og Steindór Gunnarsson. Málfríður SIgurhansdóttir verður fararstjóri og Unnur Sædís Jónsdóttir verður sjúkraþjálfari.
Þau Haraldur Hreggviðsson og Sarah Buckley fara sem dómarar og ræsir, en verið er að skoða hvort að við komum þriðja dómaranum inn.
Formaður SSí Hörður J Oddfríðarson verður einnig með í för.
Smáþjóðaleikaliðið 2019:
Karlar | Konur | ||
Anton Sveinn McKee | SH | Bryndís Bolladóttir | Breiðablik |
Brynjólfur Óli Karlsson | Breiðablik | Eydís Ósk Kolbeinsdóttir | ÍRB |
Dado Fenrir Jasminuson | SH | Eygló Ósk Gústafsdóttir | Fjölni |
Kolbeinn Hrafnkelsson | SH | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir | SH |
Kristinn Þórarinsson | Fjölni | Karen Mist Arngeirsdóttir | ÍRB |
Kristófer Sigurðsson | ÍRB | Katarina Róbertsdóttir | SH |
Patrik Viggó Vilbergsson | Breiðablik | Kristín Helga Hákonardóttir | Breiðablik |
Þröstur Bjarnason | ÍRB | María Fanney Kristjánsdóttir | SH |
Ragna Sigríður Ragnarsdóttir | Breiðablik | ||
Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir | SH | ||
Stefanía Sigurþórsdóttir | Breiðablik |