Ármann varði Íslandsmeistaratitilinn
25.05.2019
Til bakaÍ dag fór úrslitaviðureignin um Íslandsmeistaratitilinn í sundknattleik fram í Laugardalslaug. Tvö íslensk lið eru virk í íþróttinni hér á landi.
Leikurinn er partur af stærra alþjóðlegu sundknattleiksmóti sem haldið er þessa dagana í Laugardalnum en þar keppa 8 lið frá Króatíu, Þýskalandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum ásamt Sundfélagi Hafnarfjarðar og Sunddeild Ármanns.
Úrslitaleikurinn var mjög spennandi framan af og leiddi SH 6-5 í hálfleik. Í þriðja leikhluta náðu Ármenningar fljótt góðu forskoti en lokatölur urðu 13-8 fyrir þeim.
Mótið heldur áfram í dag en sigurvegarar þess verða verðlaunaðir á lokahófi á Hlemmur Square í kvöld.