AMÍ 2019 hafið
21.06.2019
Til bakaAldurflokkameistaramótið í sundi 2019 er hafið. Mótið fer fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og stendur yfir alla helgina.
Tæplega 300 keppendur eru skráðir til leiks frá 15 félögum og fjölmargir þjálfarar, fararstjórar og áhorfendur bætast við sem myndar mikla og skemmtilega stemningu á bakkanum.
Keppni í morgunhlutum hefst kl. 8:35 en seinnipartshlutar hefjast kl. 15:30 alla daga.