HM50 - Sundfólkið komið til Gwangju
18.07.2019
Til bakaÍslenska sundfólkið sem keppir á HM50 í Gwangju í S Kóreu næstu daga var að koma til borgarinnar. Þau eru nú að koma sér fyrir í íbúðunum í þorpinu, en síðan fara þau í keppnislaugina til að æfa og skoða aðstæður.
Þau sem keppa fyrir Íslands hönd eru:
Anton Sveinn Mckee
Eygló Ósk Gústafsdóttir
Kristinn Þórarinsson og
Snæfríður Sól Jórunnardóttir.
Með þeim eru Jacky Pellerin og Will Leonhart þjálfarar, Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarney Guðbjörnsdóttir liðstjóri. Þá er Hörður Oddfríðarson ritari SSÍ einnig á mótinu en hann mun sækja þing FINA og sinna fréttaflutningi af mótinu.