Fjölmenni á fyrirlestri Antons Sveins í gærkvöldi
30.08.2019
Til bakaÓlympíufarinn Anton Sveinn McKee hélt frábæran fyrirlestur í gærkvöldi fyrir fullum sal af sundfólki og foreldrum. Yfir 100 manns mættu til að hlýða á Anton. Þar sagði hann á einlægan hátt frá ferli sínum sem sundmanni og hvernig hann hefur náð að tvinna saman sundiðkun,nám og vinnu.
Anton endaði fyrirlesturinn á tilvitnun sem hann samdi sjálfur en þau hljóða svona:
þú veist þú ert á réttri leið þegar þú nýtur þess að sjá hvað í þér býr,
ert með markmið sem halda þér einbeittum,
þorsta í þekkingu til að bæta þig,
og æfingarfélaga sem ýta þér áfram