Íslandsmet í 4x100m skriðsundi
09.11.2019
Til bakaÍslandsmetið í 4x100m skriðsundi kvenna féll í lokagrein annars dags ÍM25 í Ásvallalaug.
A-sveit SH syntu þá á 3:49,66 en gamla metið var orðið 10 ára gamalt - 3:50,80 og var í eigu Ægiringa.
Þær Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Katarína Róbertsdóttir, Steingerður Hauksdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skipuðu sveitina.
Heildarúrslit dagsins má finna hér: http://live.swimrankings.net/26053
Undanrásir hefjast aftur kl. 9:30 í fyrramálið.