Íslandsmet í 4x50m skriðsundi
09.11.2019
Til bakaÞriðja hluta Íslandsmeistaramótsins í 25m laug lauk nú rétt í þessu en í síðustu greininni, 4x50m skriðsundi í blönduðum flokki, féll 5 ára gamalt Íslandsmet.
A - sveit SH synti á 1:37,53 en gamla metið var 1:38,63.
Sveit SH skipuðu þau Steingerður Hauksdóttir, Kolbeinn Hrafnkelsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Dadó Fenrir Jasminuson.
Til hamingju SH-ingar.