Íslandsmet í 4x50m skriðsundi kvenna
10.11.2019
Til bakaKvennasveit SH sló rétt í þessu Íslandsmetið í 4x50m skriðsundi á ÍM25 í Ásvallalaug.
Stelpurnar syntu á 1:43,18 en gamla metið var 1:45,43, frá því í desember 2012.
Sveitina skipuðu þær Steingerður Hauksdóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Katarína Róbertsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.