EM25 hópurinn til í tuskið í Glasgow
Átta íslenskir keppendur og fjögurra manna föruneyti ferðaðist til Glasgow í Skotlandi í gærmorgun en dagana 4-8. desember fer Evrópumeistaramótið í 25m laug fram í Tollcross sundhöllinni þar úti.
Íslenska sundfólkið syndir samtals 21 einstaklingsgrein og 5 boðsund á mótinu en undanrásir eru alla morgna og undanúrslit og úrslit í seinni hlutum dags.
Undanrásir hefjast alla morgna kl. 9:30 og úrslitahlutar hefjast 17:00.
Landsliðið er svona byggt upp að þessu sinni:
- Anton Sveinn McKee
- Dadó Fenrir Jasminuson
- Eygló Ósk Gústafsdóttir
- Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
- Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
- Kolbeinn Hrafnkelsson
- Kristinn Þórarinsson
- Snæfríður Sól Jórunnardóttir
Fylgdarlið:
- Mladen Tepavcevic, þjálfari
- Bjarney Guðbjörnsdóttir, þjálfari
- Hlynur Skagfjörð Sigurðsson, sjúkraþjálfari
- Hilmar Örn Jónasson, fararstjóri
Hörður J. Oddfríðarson, ritari stjórnar SSÍ og Emil Örn Harðarson, móta- og miðlunarstjóri SSÍ með hópnum og sinna fjölmiðlun. Þá verða tveir íslenskir dómarar við störf á mótinu en það eru þeir Björn Valdimarsson og Sigurður Óli Guðmundsson.
Sýnt verður beint frá öllum mótshlutum á RÚV 2.
EM25 síðan - nánar um sundfólkið okkar
Instagram: Sundheimurinn