Breiðablik auglýsir eftir sundþjálfara
11.03.2020
Til bakaSunddeild Breiðabliks auglýsir eftir sundþjálfara á yngri hópa félagsins fyrir komandi tímabil 2020/2021.
Starfssvið þjálfara:
- Vinnur að markmiðasetningu iðkenda og fylgir þeim eftir ásamt yfirþjálfara
- Þjálfar hópa í Kópavogslaug/Salalaug í samvinnu við yfirþjálfara
- Sér um skráningu á mót og skipulagningu æfingaferða.
- Heldur góðum tengslum við foreldra iðkenda.
Hæfni:
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Viðkomandi þarf að vera skipulagður og nákvæmur í störfum sínum
- Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun
Nánari upplýsingar veitir formaður sunddeilarinnar, Bryndís Sigurðardóttir í síma 8980509 eða í netfangi bryndis73@gmail.com.