Ný auglýsing um samkomubann
Nú rétt í þessu birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum, skv. nýju auglýsingunni, tekur gildi 25. maí nk. kl. 00:00 og gildir til 21. júní nk. kl. 23:59.
Okkur öllum til mikillar gleði þá getur íþróttaiðkun allra aldurshópa í landinu nú farið fram án takmarkana.
Áfram verða þó fjöldatakmarkanir á íþróttaviðburðum sem og öðrum viðburðum, þannig að ekki mega fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Það þýðir að takmarkanir verða á fjölda áhorfenda á íþróttaviðburðum.
Við hvetjum alla í íþróttahreyfingunni til að lesa nýju auglýsinguna vel, kynna sér innihald hennar vandlega og fara í einu og öllu eftir tilmælum og reglum yfirvalda.
Meðfylgjandi er auglýsing heilbrigðisráðherra og minnisblað sóttvarnalæknis.
Frétt heilbrigðisráðuneytis um nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Minnisblað sóttvarnalæknis dags. 20. maí.pdf
Auglýsing um samkomubann 22. maí 2020.pdf
Með bestu kveðjum og ósk um góða helgi!