Laugarvarðanámskeið 10.júní
Þar sem SSÍ varð að fresta laugarvarðanámskeiði sem fram átti að fara í mars, höfum við ákveðið að bjóða upp á námskeið miðvikudaginn 10. júní.
Námskeiðið fer fram í Pálsstofu í Laugardalslaug og hefst kl 9:00 ef næg þátttaka næst. Námskeiðið er ykkur að kostnaðarlausu.
Mikilvægt er að félögin haldi vel utan um þessi mál og vinni með Sundsambandinu svo að allir sem starfa á þeirra vegum séu með þessi réttindi og hafi lokið námskeiði í skyndihjálp og björgun.
Bæði er það gert til að auka öryggi iðkenda og þjálfara.
Það er mjög mikilvægt að félögin geri sér grein fyrir þeirri skaðabótaskyldu, sem á þeim gæti legið ef eitthvað kemur fyrir og ábyrgðaraðili á bakka er réttindalaus.
Við viljum einnig minna á athugasemdina sem barst frá Heilbrigðiseftirlitinu í febrúar s.l.
Við skoðun kom í ljós að sumir "sundþjálfarar höfðu ekki farið á skyndihjálparnámsekið í 3 ár. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki fengið neinar upplýsingar um hvort úr þessu hafi verið bætt . Í sömu grein reglugerðar segir að eiganda sund- og baðstaðar er skylt að sjá til þess að starfsfólk fái reglulega starfsþjálfun eigi sjaldnar en árlega, þar með talin þjálfun í sérhæfðri skyndihjálp sem sérstaklega er ætluð sund- og baðstöðum og fræðslu um hreinlæti og hollustuhætti. Heilbrigðiseftirlitið krefst þess að allir þeir sem sinna sundþjálfun við laugina séu með gilt prófskírteini í skyndihjálp."
Þeir sem sátu námskeið til þessara réttinda fyrir tveimur árum eða meira þurfa nú að sitja námskeiðið aftur til að viðhalda réttindum sínum
Vinsamlega sendið skráningu á ingibjorgha@iceswim.is
fyrir mánudaginn 8.júní