Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jóhanna Elín með EM50 lágmark

06.03.2021Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, sundkona í SH, synti rétt í þessu undir EM50 lágmarki í 50m skriðsundi á móti í San Antonio í Texas. Jóhanna synti á tímanum 26,35,en lágmarkið er 26,38.

Jóhanna Elín stundar nú háskólanám í Southern Methodist Háskólanum (SMU) í Texas og æfir sund með skólaliðinu þar. Um síðustu helgi kláraði hún háskólakeppni með liði sínu og um þessa helgi tekur hún þátt í TYR mótaröðinni, sem fram fer í San Antonio, en sú mótaröð er gríðalega sterk í Bandaríkjunum.

Jóhanna Elín er önnur sundkonan sem syndir undir EM50 lágmarki um helgina, en Snæfríður Sól synti í gær undir lágmarki á EM50 og undir boðslágmarki á ÓL 2021.

Evrópumeistaramótið í 50m laug fer fram í Búdapest í Ungverjalandi dagana 17. – 23. maí næstkomandi. Síðasta tækifæri til að tryggja sér lágmark á EM50 verður svo á Íslandsmeistaramótinu sem fram fer 9. – 11. apríl nk. í Laugardalslaug.
Til baka