EM50 - keppendur og greinar
15.05.2021
Evrópumeistaramótið í 50m laug mun fara fram dagana 17.-23. maí nk. í Búdapest í Ungverjalandi. Alls hafa 5 einstaklingar náð tilskyldum árangri inn á mótið og flugu þau út 13. maí ásamt þjálfurum og fylgdarliði.
Eyleifur Jóhannesson yfirmaður landsliðsmála fer sem landsliðsþjálfari og fararstjóri og þá verður Björn Sørensen, þjálfari Snæfríðar með hópnum sem aðstoðarþjálfari. Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari sér svo til þess að halda fólkinu okkar í toppstandi á mótinu. Hörður J. Oddfríðarson ritari SSÍ verður með hópnum út sem fjölmiðlafulltrúi en hann flaug til móts við hópinn í morgun.
Nafn og greinar |
Bestu tímar 2021 |
Bestu tímar (Pb) |
Dagsetning (Pb) |
EM50 2021 | ||||
Dadó Fenrir Jasminuson - SH 20. maí - 50m flugsund 22. maí - 50m skriðsund 22. maí - 4x100m skriðsund blandað |
25,28 23,33 |
|
25. apr 2021 20. apr 2018 |
|||||
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir - SH 17. maí - 50m skriðsund 21. maí - 100m skriðsund 22. maí - 50m flugsund 22. maí - 4x100m skriðsund blandað |
26,36 57,66 27,67 |
26,03 57,61 27,67 |
25. jan 2020 15. mar 2020 24. apr 2021 |
26,18 |
||||
Kristinn Þórarinsson - Fjölnir 17. maí - 50m baksund 19. maí - 100m baksund 22. maí - 4x100m skriðsund blandað |
26,50 59,19 |
25,95 56,53 |
7. apr 2019 6. apr 2019 |
26,66 | ||||
Snæfríður Sól Jórunnardóttir - Aalborg 19. maí - 200m skriðsund 21. maí - 100m skriðsund 23. maí - 400m skriðsund 22. maí - 4x100m skriðsund blandað |
2:00,50 57,05 4:20,75 |
2:00,50 56,31 4:20,75 |
5. mar 2021 12. júl 2018 20. apr 2021 |
|||||
Steingerður Hauksdóttir - SH 17. maí - 50m skriðsund 18. maí - 50m baksund |
26,64 29,49 |
26,45 29,46 |
2. jún 2019 17. júl 2020 |
26,98 29,43 |