EM50 hefst í dag - Í beinni á RÚV
17.05.2021
Til bakaEvrópumeistaramótið í 50m laug hefst í dag í Búdapest í Ungverjalandi þar sem við Íslendingar eigum 5 keppendur.
Þrjú eiga sund á fyrsta degi en það eru þau Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Steingerður Hauksdóttir í 50m skriðsundi og Kristinn Þórarinsson í 50m baksundi.
RÚV verður með beina útsendingu frá öllum úrslitahlutum mótsins og hefjast þeir kl. 15:55 að íslenskum tíma.
Undanrásirnar hefjast kl. 8:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með framgangi íslensku keppendanna, ráslista, dagskrá og úrslit hér:
http://budapest2020.microplustiming.com/indexBudapest2021_web.php