Ársþing SSÍ 2021 - Dagskrá
18.05.2021
Til bakaDagskrá fyrir ársþing Sundsambands Íslands árið 2021 sem haldið verður í húsakynnum ÍSÍ við Engjaveg, 1. júní n.k. hefur verið gefin út.
Kjörbréf hafa einnig verið gefin út og ber að skila við skráningu á þinginu þriðjudaginn 1. júní en nafnalisti frá félögum þarf að berast eigi síðar en þriðjudaginn 25. maí með tölvupósti á ingibjorgha@iceswim.is
Þinggöng verða sett inn á heimasíðu SSÍ þegar nær dregur þingi.
http://www.sundsamband.is/efnisveita/sundthing/