Anton Sveinn hefur keppni á ISL á morgun
25.08.2021
Til bakaAnton Sveinn McKee mun keppa með liði Toronto Titans í ISL deildinni sem hefst í Napolí á Ítalíu á morgun.
ISL (The International Swimming League ) deildin var stofnuð árið 2019 og er fyrsta alþjóðlega atvinnumannadeildin í sundi.
Deildin sem er liðakeppni er skipuð 10 liðum sem hvert og eitt er skipað 32 sundmönnum, sem telja til bestu sundmanna heims.
Hvert lið sendir tvo sundmenn í hverja grein, sundfólkið vinnur sér inn stig eftir sætaröð. Einnig er keppt í boðsundum en þar er hægt að fá tvöföld stig.
Úrsláttarkeppni gefur flest stig.
Heimasíða ISL : https://isl.global/
Hér er hægt að finna upplýsingar um mótaröðina:
Við hlökkum til að fylgjast með Antoni næstu vikurnar.