Fyrirlestur - Anton Sveinn á morgun laugardag kl 14:30
10.12.2021
Til bakaVið höfum ákveðið að hafa einn fyrirlestur á laugardaginn í stað tveggja þar sem skráning var ekki nógu góð á fyrirlestur fyrir sundfólk á grunnskólaaldri.
Fyrirlesturinn verður kl 14:30 í D- sal ÍSÍ fyrir þá sem eru í 10. bekk, þá sem eru á menntaskólaaldri og eldri.
Við viljum auðvitað sjá sem flesta og biðjum ykkur að skrá ykkur hér sem allra fyrst : https://forms.gle/gZW1WAz6pc1LN16D9
Fyrir þá sem búa úti á landi eða eiga erfitt með að koma á staðinn þá er hér linkur til að vera með á TEAMS :
Anton Sveinn mun fara um víðan völl í þessum fyrirlestri og mun í lokin svara spurningum ef svo ber undir.
Endilega hvetjið ykkar fólk til að skrá sig í dag 😊