Anton Sveinn sjötti á HM50
23.06.2022
Til bakaAnton Sveinn keppti í 8 manna úrslitum rétt í þessu á HM50 í Búdapest. Anton Sveinn varð í sjötta sæti sem er frábær árangur, hann synti á tímanum 2:09.37.
Zac Stubblety-Cook, hinn 23 ára gamli Ólympíumeistari og heimsmethafi frá Ástralíu, varð heimsmeistari á 2:07,07 mínútum. Yu Hanaguruma, 22 ára Japani, og Erik Persson, 28 ára Svíi, deildu silfurverðlaununum en þeir komu hnífjafnir í mark á 2:08,38 mínútum.
Anton getur svo sannarlega verið afar sáttur við árangur sinn í Búdapest, búinn að tvíbæta metið í 200m bringusundi og endar í úrslitasundi á HM50.
Nú hefst undirbúningur fyrir EM50 sem veður í Róm um miðjan ágúst, það verður virkilega spennandi að fylgjast með honum þar.
Innilega til hamningju Anton Sveinn !