Freyja synti í morgun á EMU í Búkarest
08.07.2022
Til bakaFreyja Birkisdóttir var sú eina sem stakk sér til sunds í morgun á EMU í Búkrest. Freyja synti 800m skriðsund á tímanum 9:13.95. en hennar besti tími í greininni er 9:08.86. Freyja mun synda á sunnudaginn, 400m skriðsund.
Á morgun, á næst síðasta degi mótsins munu þeir Einar Margeir, Snorri Dagur og Daði Björnsson synda 100m bringusund, þeir munu hefja keppni kl 07:28 á ÍSl tíma. Þá mun Eva Margrét synda 200m fjórsund og mun hennar keppni hefjast kl 8.26 í fyrramálið.