Anton Sveinn með silfur í 200m bringusundi á spænska meistaramótinu
23.07.2022
Til bakaAnton Sveinn McKee synti rétt í þessu til úrslita í 200m bringusundi á opna spænska meistaramótinu í sundi sem fram fer í Barcelona.
Anton synti á tímanum 2:13.05 og tryggði sér silfurverðlaun í sundinu. Besti tími hans í sundinu er 2:08.74 sem hann synti á HM50 í Búdapest í júní, þar sem hann varð í 6 sæti.
Anton er búinn að vera í þungum æfingum síðan á HM50 og var þetta mót liður í undirbúningi hans fyrir EM50 sem hefst í Róm eftir 3 vikur.
Anton Sveinn mun vera við æfingar á Spáni fram að EM50.