Tveir dómarar á EM50 2022
12.08.2022
Til bakaVið hjá SSÍ erum svo heppin að hafa tvo dómara með okkur hér í Róm, en þau standa vaktina hér nánast allan daginn við sundlaugarbakkann.
Það eru alþjóðadómararnir, Björn Valdimarsson og Ingibjörg Ýr Pálmadóttir sem taka þátt í EM50 að þessu sinni.
Björn og Ingibjörg eru mjög reyndir dómarar og hafa áður tekið þátt í stórmótum sem þessum. Við náðum nokkrum myndum af þeim í morgun en fáum vonandi að sjá og heyra í þeim á næstu dögum.
Þau voru alsæl þegar við hittum þau í morgun og tilbúin í daginn.