World Cup í Berlín hófst í morgun
World Cup hófst í Berlín í morgun og stakk Freyja Birkisdóttir sér fyrst til sunds í morgun í 400m skriðsundi. Hún synti á tímanum 4.21, 18 sem er alveg við hennar besta tíma.
Steingerður Hauksdóttir synti 50m baksund á tímanum 28,65 og 50m skriðsund á tímanum 26,11.
Daði Björnsson synti 100m bringusund á tímanum 1.01,43 sem er alveg við hans besta tima sem hann setti í september. Daði synti einnig 100m fjórsund á tímanum 59,14.
Einar Margeir Ágústsson synti einnig 100m bringusund á tímanum 1.04,03, sem er alveg við hans besta tíma. Einar synti einnig 100m fjórsund og setti persónulegt met, 58,80.
Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100m flugsund á tímanum 56,37, Birnir synti einnig 100m fjórsund og bætti þar sinn besta tíma, 58,50.
Símon Elías Statkevicius synti 100m flugsund á persónulegu meti, 54,20, hann synti einnig 50m skriðsund á tímanum 23,16
Fínn árangur á World Cup í morgun hjá okkar fólki.