World Cup í indianapolis hófst í gær.
Sundsambandið er með þrjá keppendur á World Cup í Indianapolis. Mótið hófst í gær og stakk Patrik Viggó Vilbergsson úr SH sér fyrstur til sunds. Hann synti 200m baksund á tímanum 2:00,48 og bætti tímann sinn um 3 sekúndur. Patrik Viggó æfir nú og stundar nám í Indiana, í University of Evansville.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH kom frá Texas til Indianapolis en hún er í Southern Methodist University þar sem hún stundar nám og keppni. Hún synti 50m skriðsund í gær á tímanum 25,70 , besti tími hennar í greininni er 25,08.
Anton Sveinn úr SH synti 100m bringusund á tímanum 1.00,07 sem er töluvert frá hans besta en World Cup er undirbúningur hans vegna HM25 sem hefst 13. desember í Ástralíu.
Mótið heldur áfram í dag og mun Jóhanna Elín synda 50m flugsund kl 14.54 á isl tíma. Patrik Viggó mun synda í kvöld kl 2213 , 1500m skriðsund.
Hægt er að fylgjast með streymi frá mótinu hér
Úrslit eru hér