ÍM25 hefst á morgun í Ásvallalaug
Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug fer fram í Ásvallalaug, Hafnarfirði, helgina, 18.-20. nóvember 2022.
Undanrásir hefjast kl 9:30 alla morgna og úrslitin hefjast kl 16:30.
Mótið er haldið í samstarfi við Íþróttasamband Fatlaðra. Sundfélag Hafnarfjarðar sér um framkvæmd mótsins.
Alls eru 172 keppendur skráðir á mótið.
Mótið er með nýju sniði í ár þar sem krýndir verða unglingameistarar samhliða Íslandsmeistara í opnum flokki. Unglingaflokkur er 17. ára og yngri í kvennaflokki og 18. ára og yngri í karlaflokki.
Undanrásir verða á morgnana og jafnframt er keppt til úrslita í unglingaflokki. Verðlaunaafhending fer fram í úrslitahluta.
Sundmaður og sundkona ársins 2021, þau Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir taka ekki þátt í mótinu að þessu sinni. Snæfríður Sól tekur þátt í Bikarkeppni í Danmörku um helgina. En hún og Anton Sveinn undirbúa sig fyrir HM25 sem fram fer í Ástralíu í desember. Þá geta þeir sundmenn sem æfa og keppa í USA ekki tekið þátt í mótinu vegna anna í skóla.
Í lok mótsins verða veittar viðurkenningar fyrir besta afrek í kvenna og karlaflokki samkvæmt gildandi stigatöflu FINA. Einnig verður liðið sem tekur þátt í Norðurlandameistaramótinu í Bergen í desember valið.
Eins og sjá má þá verður mikið um að vera í Ásvallalaug um helgina.
Hægt er að fylgjast með úrslitum hér: úrslit
Einnig verður streymi alla helgina hér : streymi