ÍM25 hófst í morgun - tvö unglingamet litu dagsins ljós
18.11.2022
Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug hófst í morgun í Ásvallalaug, Hafnarfirði,
Undanrásir hófust með látum í morgun með því að tvö unglingamet litu dagsins ljós.
Það var fyrst Daði Björnsson sem bætti sitt eigið met í 100m bringusundi á tímanum 1:00,67, gamla metið var 1:01,12 sem hann setti í október, flott bæting hjá Daða.
Boðsundsveit ÍRB setti unglingamet í 4x50m fjórsundi kvenna. Þær syntu á tímanum 1:59,35,
gamla metið var 1:59,43 og var í eigu SH. Sveitin var skipuð þeim Ástrósu Lovísu Hauksdóttur, Elísabetu Arnoddsdóttur, Evu Margréti Falsdóttur og Sunnevu Bergmann Ásbjörnsdóttur
Úrslitahlutinn hefst kl 16:30 í dag og það má búast við spennandi keppni í mörgum greinum seinnipartinn.
Úrslit er hægt að finna hér : úrslit