Íslandsmet í 4x50m fjórsund blönduðu boðsundi
19.11.2022
Til bakaÍslandsmeistaramótið í 25m laug hélt áfram í Ásvallalaug í morgun. Eitt Íslandsmet leit dagsins ljós í boðsundi.
Sveit SH setti Íslandsmet blönduðu boðsundi í 4x50m fjórsundi, sveitin synti á tímanum 1:47,21 en gamla metið átti einnig sveit SH, 1:47,55
Sveitina skipa þau :
Símon Elías Statkevicius , Steingerður Hauksdóttir, Kristín Helga Hákonardóttir og Daði Björnsson