Íslands- og Unglingameistaramóti í 25m laug, sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina, lauk nú í kvöld.
Íslands- og Unglingameistaramóti í 25m laug, sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina, lauk nú í kvöld.
Í síðustu grein dagsins setti sveit SH nýtt Íslandsmet í 4x100m fjórsundi karla. Þeir syntu á tímanum 3:42,37, gamla metið var 3.43,22 og átti sveit ÍRB það.
Sveitina skipuði þeir : Kolbeinn Hrafnkelsson, Birnir Freyr Hálfdánarsson, Snorri Dagur Einarsson og Símon Elías Statkevicius.
Í sama sundi setti sveit SH 2 unglingamet á tímanum 3:45,48 og sveit SH 3 setti nýtt aldursflokkamet á tímanum 4:05.48
Sveit SH 2 skipuðu þeir : Bergur Fáfnir Bjarnason Daníel Lúkas Tómasson,Daði Björnsson og Veigar Hrafn Sigþórsson.
Sveit SH 3 skipuðu þeir : Magnús Víðir Jónsson, Hólmar Grétarsson ,Arnar Logi Ægisson og Björn Yngvi Guðmundsson.
Ylfa Lind Kristmansdóttir setti nýtt aldursflokkamet í 100m flugsundi, en hún synti á tímanum 1:04,52. Gamla metið átti hún sjálf 1:04,68 sett í sumar.
Það var virkilega góð stemmning í Ásvallalaug um helgina og árangur heilt yfir mjög góður.
Sett voru 2 Íslandsmet, 5 unglingamet og 4 aldursflokkamet og mikið var um góðar bætingar.
Það er sannarlega hægt að gleðjast yfir þessum góða árangri um helgina og allri umgjörð mótsins.
Besta afrek í kvennaflokki á mótinu samkvæmt FINA stigtöflu vann Freyja Birkisdótti fyrir 400m skriðsund en hún fékk 738 stig.
Besta afrek í karlaflokki samkvæmt stigatöflunni vann Snorri Dagur Einarsson fyrir 100m bringusund, en hann fékk 770 stig.
Að lokum var valið landslið Íslands í sundi sem mun taka þátt í Norðurlandameistaramótínu sem fram fer í Bergen 8. – 13 .desember.
Landsliðið fyrir NM skipa þau :
Bergur Fáfnir Bjarnason SH
Birnir Freyr Hálfdánarsson SH
Björn Ingvi Guðmundsson SH
Daði Björnsson SH
Einar Margeir Ágústsson ÍA
Eva Margrét Falsdóttir ÍRB
Fannar Snævar Hauksson ÍRB
Freyja Birkisdóttir Breiðablik
Guðmundur Karl Karlsson Breiðablik
Guðmundur Leó Rafnsson ÍRB
Katja Lilja Andriysdóttir SH
Kristín Helga Hákonardóttir SH
Nadja Djurovic Breiðablik
Patrik Viggó Vilbergsson SH
Símon Elías Statkevicius SH
Snorri Dagur Einarsson SH
Steingerður Hauksdóttir SH
Sunna Arnfinnsdóttir Ægir
Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir ÍRB
Vala Dís Cicero SH
Veigar Hrafn Sigþórsson SH
Ylfa Lind Kristmannsdóttir Ármann
Íslandsmeistarar dagsins: | Unglingameistarar dagsins: | |
400m fjórsund karlar | 400m fjórsund karlar | |
Enrique Snær Llorens Sigurðsson ÍA | Veigar Hrafn Sigþórsson SH | |
1500m skriðsund konur | 1500m skriðsund konur | |
Freyja Birkisdóttir Breiðablik | Freyja Birkisdóttir Breiðablik | |
200m baksund konur | 200m baksund konur | |
Sunna Arnfinnsdóttir Ægi | Sunna Arnfinnsdóttir Ægi | |
200m skriðsund karlar | 200m skriðsund karlar | |
Birnir Freyr Hálfdánarsson SH | Birnir Freyr Hálfdánarsson SH | |
100m flugsund konur | 100m flugsund konur | |
Kristín Helga Hákonardóttir SH | Eva Margrét Falsdóttir ÍRB | |
50m flugsund karlar | 50m flugsund karlar | |
Símon Elías Statkevicius SH | Fannar Snævar Hauksson ÍRB | |
50m bringusund konur | 50m bringusund konur | |
Katja Lilja Andriysdóttir SH | Eva Margrét Falsdóttir ÍRB | |
200m bringusund karlar | 200m bringusund karlar | |
Daði Björnsson SH | Daði Björnsson SH | |
100m skriðsund konur | 100m skriðsund konur | |
Kristín Helga Hákonardóttir SH | Vala Dís Cicero SH | |
100m baksund karlar | 100m baksund karlar | |
Fannar Snævar Hauksson ÍRB | Fannar Snævar Hauksson ÍRB | |
200m fjórsund konur | 200m fjórsund konur | |
Eva Margrét Falsdóttir ÍRB | Eva Margrét Falsdóttir ÍRB | |
800m skriðsund konur | 800m skriðsund konur | |
Freyja Birkisdóttir Breiðablik | Freyja Birkisdóttir Breiðablik | |
4x50m skriðsund blandað | ||
Sveit SH1 | ||
4x100m skriðsund konur | ||
Sveit SH 1 | ||
4x100m skriðsund karlar | ||
Sveit SH 1 |