Snæfríður Sól í 16 manna úrslit á HM25 á nýju Íslandsmeti
14.12.2022
Snæfríður Sól Jórunnardóttir gerði sér lítið fyrir og synti sig inn í 16 manna úrslit á nýju Íslandsmeti á HM25 sem fram fer í Melbourne í Ástralíu þessa dagana,
Snæfríður synti á 53,21 og er fimmtánda inn í úrslitin sem verða í fyrramálið á íslenskum tíma. Hún bætti tæplega mánaðargamalt met sitt, en það var 53,75.
Frábært sund hjá Snæfríði Sól.
Anton Sveinn McKee synti 100m bringusund á tímanum 58,01 og varð í 18 sæti og kemst því ekki áfram í 16 manna úrslitin í fyrramálið.
Íslandsmetið hans í greininni er 56,30
Hægt verður á horfa á beina útsendingu á Rúv í fyrramálið kl 8:35 og fylgjast með Snæfríði